Sigrún Björk Reynisdóttir á fjögurra ára Labradortíkina Athenu sem skynjar eiganda sinn á ótrúlegan hátt. Sigrún segir: „Þegar ég var ólétt af dóttur minni þurfti tíkin alltaf að fá að vera nálægt bumbunni. Ef hún fékk að kúra uppi í sófa þá lá hún alltaf með hausinn á henni og hún gjörsamlega rotaðist oft þegar hún lá þarna. Eftir að dóttir mín fæddist hætti tíkin alveg að leggja hausinn þarna.“
Ári seinna fór Athena aftur að stunda sömu iðju – alltaf að leggja hausinn á magann á henni.
„Ég sagði við kallinn: „Hva, ætli ég sé ólétt aftur fyrst Athena er farin að liggja alltaf svona með hausinn á bumbunni?“ og hló,“ segir Sigrún. „Viku seinna pissaði ég á prik og viti menn, það var jákvætt! Ég verð að segja að mér finnst ansi merkilegt að tíkin skildi vita þetta! Í seinna skiptið þegar ég komst að því að ég væri ólétt var ég einungis komin fjórar vikur á leið þegar ég tók prófið. Hún hefur bara fundið þetta strax!“ segir hún en hún átti börnin sín árið 2014 og 2015.
Auglýsing
Sigrún segir Athenu vera afskaplega góð og róleg í kringum börnin: „Hún svaf alltaf undir vöggunni þegar þau voru lítil. Ef dóttirin svaf í barnavagni úti var Athena laus og kom svo inn þegar sú litla rumskaði og sótti mig. Hún er ekkert ofan í þeim eða neitt. En til dæmis ef þau eru inni í herberginu sínu að leika þá liggur hún þar einhverstaðar líka.“
Aðspurð hvort hún telji að Athena gæti fundið á sér hvort aðrar konur séu með barni segist Sigrún ekki vita hvort svo sé: „Athena er svosem voða blíð og góð við alla þannig að það er kannski spurning hvort maður prófi það..“ segir hún og hlær.