Nú er kannski tímabært að tala um CoverBoy! Þann 11. október 2016 mun James Charles verða fyrsti karlmaðurinn til að verða andlit snyrtivörufyrirtækisins CoverGirl. Hann er 17 ára gamall og er förðunarfræðingur – gríðarlega vinsæll á YouTube. Nú hefur hann farið í myndatöku með engri annarri en söngkonunni Katy Perry og okkur finnst hann æðislegur.
Í fréttatilkynningu frá CoverGirl segir að allar fyrirsætur fyrirtækisins brjóti viðmið og séu óttalausar fyrirmyndir sem standi upp fyrir sjálfri sér.
James Charles er engin undantekning. Hann hefur notað andlitið á sér á Instagram til að sýna hvað hann kann og getur. Hann sýnir mikinn karakter og geta menn, konur, strákar og stelpur tekið sér hann til fyrirmyndar.“