Næstum áratugur er síðan þættirnir Keeping Up with the Kardashians litu fyrst dagsins ljós. Nú lítur út fyrir að hætt verði framleiðslu á þeim eftir ránið á Kim Kardashian í vikunni. Us Weekly staðfestir að þættirnir sem hafa verið sýndir á E! sjónvarpsstöðinni hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
Myndavélarnar hafa ekki verið á Kim eftir að ráðist var á hana og teymið frá E! hefur ekki fengið viðbrögð neinna í fjölskyldunni. Kim mun ekki vera í vinnunni næstu vikur og mánuði og er nú í Kaliforníu með fjölskyldunni. Kanye hefur frestað næstu tónleikum hjá sér.
Kim hefur álasað sjálfri sér fyrir árásina og er nú að hugsa um breytt viðhorf gagnvart samfélagsmiðlum og lífinu öllu.
Kris Jenner hefur ekki tjáð sig og hafa fréttirnar því ekki verið staðfestar.