Allt getur gerst í New York, ekki satt? Nýgift brúðhjón, Elizabeth og Ryan, voru í Central Park í brúðkaupsmyndatöku á dögunum þegar enginn annar en Forrest Gump sjálfur labbaði upp að parinu alveg óvænt.
Meg Miller, ljósmyndarinn, segir: „Hann birtist allt í einu upp úr þurru. Þau voru í smá sjokki en þetta var dásamleg reynsla. Þetta var svona ekta NYC móment fyrir okkur öll. Ég gat ekki tekið fingurinn af takkanum á myndavélinni!“
Auglýsing
Tom var afskaplega kurteis, indæll og lét ánægju sína með ráðahaginn í ljós. Svo tók hann selfie af sér með parinu og hélt á braut.
Auglýsing