„Við munum verða fjölskylda hans og hann getur verið bróðir minn,“ sagði Alex, 6 ára, sem býr í New York. Alex skrifaði til Barack Obama, Bandaríkjaforseta og vildi hjálpa Omran Daqneesh, sýrlenska drengnum sem var bjargað úr sprengjurústum húss í síðasta mánuði í Aleppo eins og fram hefur komið í helstu fjölmiðlum þessa heims.
Alex vildi hjálpa Omran að læra að hjóla og fleira…forsetinn las bréfið og verður að segjast eins og er: Þetta er afar hjartnæmt, enda sagði Obama:
Við ættum öll að vera líkari Alex. Ímyndið ykkur hvernig heimurinn liti út ef við gerðum það. Ímyndið þjáningunum sem myndu linna og lífum sem við gætum bjargað.