Hver vill ekki líta út eins og Chewbagga úr Star Wars myndunum? Greinilega margir þar sem peysan er í augnablikinu uppseld hjá vefversluninni Welovefine. Fullyrða þeir hjá fyrirtækinu að um gervipels sé að ræða. Þegar The Force Awakens verður frumsýnd eiga eflaust margir eftir að klæðast henni í bíó!
Auglýsing
Peysan er úr brúnu pólýester með belti ská yfir brjóstkassann. Við myndum nú samt mæla með að hannaðar væru buxur í stíl!