Þetta eru brúðhjónin Matt Crain og Sarah Mallouk Crain, par frá Pennsylvaniaríki í Bandaríkjunum, sem nýlega gifti sig. Þau höfðu dásamlega hugmynd að blanda saman brúðkaupi og ást sinni á hundum.
Sarah situr í stjórn félags sem heitir Pitties Love Peace sem er björgunarmiðstöð og skýli fyrir pit bull hunda og blöndu af þeim. Sex æðislegir hvolpar voru með á öllum myndunum sem teknar voru af brúðarmeyjum – og mönnum.
Auglýsing
„Dýr eru svo ofboðslega stór hluti af lífi okkar og við vildum finna leið til að hafa þá einhvernveginn með á stóra deginum,“ segir Sarah. Er þetta ekki frábær hugmynd?
Auglýsing