Þessi sjónhverfing hefur verið áberandi á netinu að undanförnu en höfundur hennar er Jacques Ninio. Það eru 12 punktar á myndinni en flestir geta ekki séð þá alla í einu vegna þess að jaðarsjón okkar er yfirleitt ekki nógu góð.
Auglýsing
Þegar hvítu diskarnir í grind sem þessari eru minnkaðir í stærð með svörtum línum hættir þeim til að hverfa. Maður sér einungis fáa í einu, í klösum sem flytjast óþægilega á milli. Þegar við sjáum þá ekki er gráa svæðið ráðandi og við sjáum gráar krosslínur sem eru í raun ekki til staðar.
Ótrúlegt, finnst þér ekki?