Þetta kann að hljóma furðulega og kannski ógeðslega, en þú ættir í alvöru að prófa að setja munnskol í fóta-baðvatnið þitt! Já, munnskolið Listerine sem þú færð í apótekum!
Hér er uppskriftin:
Taktu hluta af Listerine, borðediki og vatni og blandaðu í bala. Hafðu fæturnar ofan í í 15 mínútur.
Þegar þú ert búin/n þurrkarðu fæturnar og þeir eru mjúkir eins og barnsrass!
Segðu bless við bæði þurra húð og hörð horn…
Þó að hljómi furðulega að setja munnskol í baðvatnið er það innihaldsefnin sem skipta máli. Bæði í edikinu og Listerine eru sýrur sem vinna vel saman. Vatnið mýkir blönduna til að koma í veg fyrir of sterka blöndu. Svo já – öll þessi ráð frá Pinterest eru að virka!