Fyrsta serían af Stranger Things hefur vakið mikla athygli á Netflix og hafa aðdáendur vart haldið vatni yfir því hvort önnur sería muni verða framleidd. Netflix hefur nú staðfest að önnur sería muni verða gerð og verður hún frumsýnd árið 2017.
Mun hún innihalda níu þætti (fyrri hafði aðeins átta) og handritshöfundarnir The Duffer Brothers hafa nú skilað handriti til forsvarsmanna Netflix.
Auglýsing
Winona Ryder, Matthew Modine verða áfram í þáttunum og fleiri nýir leikarar. Ráðgátan um Will Byers heldur því áfram!