Karítas Lóa hefur heldur betur slegið í gegn með vali á sínu helsta átrúnaðargoði. Goðið er enginn annar en einn fremsti fréttaþulur Íslands, Bogi Ágústsson! Við mælum með því að ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur.
Í kvöld fékk Karítas, sem hafði nýverið fengið afmælisköku með mynd af átrúnaðargoðinu, að vera með Boga á setti í kvöldfréttum RÚV. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að elta sína drauma – hver veit hvenær þeir verða að veruleika?
Geri aðrir betur!