Söngkonan Katy Perry hefur loksins gefið út myndbandið við lagið „Rise“ sem mun hljóma undir allri umfjöllun sjónvarpsstöðvarinnar NBC um Ólympíuleikana árið 2016. Tvítaði Katy af því tilefni: „Blóð, sviti og tár, við höldum áfram að rísa. Loksins, myndbandið við #RISE.“
Fjallar myndbandið um tilraunir hennar til að fá fallhlífina sína til að virka (eflaust bara betra að horfa á myndbandið) en það er býsna táknrænt.
Fellur þó myndband hennar í skuggann af nektarmyndum af kærastanum á kanó – engum öðrum en Orlando Bloom – sem skutu upp kollinum akkúrat meðan hún var að frumsýna myndbandið….engum ofsögum sagt að textarnir hennar hitti í mark þegar hún talar um karlmennina í lífi sínu…