Þessi mynd af barninu… Færslu Lauren Rincon hefur verið „retweetað“ um 50 þúsund sinnum eftir að hún birti mynd af eins árs frænku sinni eftir að hún át augnskugga úr augnskuggapallettu. Lauren sem er átján ára kom heim um leið og móðir hennar hafði uppgötvað að Kaitlyn (1 árs) hafði laumast inn í herbergið hennar og borðað augnskuggana.
Höfðu þær samband við fyrirtækið til að athuga hvort barnið hefði innbyrt hættuleg efni, en sem betur fer var það ekki svo slæmt. Fyrirtækið heitir Too Faced og er ekki að undra að Kaitlyn litla hafi haldið að augnskuggarnir væru ætir – þeir nefnilega lykta líka eins og súkkulaði!
MY NIECE ATE MY TOO FACED CHOCOLATE BAR PALLETTE BC IT SMELLS LIKE CHOCOLATE I DONT KNOW IF I SHOULD CRY OR LAUGH pic.twitter.com/nRAWHOcjjE
— lauren rincon (@llaurenbbby) July 30, 2016