Guðni Th. Jóhannesson vildi að innsetningarthöfnin yrði látlausari en oft áður og var ekki nauðsynlegt að klæðast síðkjól eða kjólfötum að þessu tilefni eins og áður þegar nýr forseti tekur við embætti. Allir mættu þó í sínu fínasta pússi, sumir þjóðlegir aðrir frjálslegri. Látum myndirnar segja sína sögu:
Guðlaugur Þór glæsilegur á velli í Íslandsbláum jakkafötum
Framsóknarmaddaman Þórunn Egilsdóttir þjóðleg með skotthúfu í upphlut
Fjölbreytileikinn í fyrirrúmi
Lilja Rafney afslöppuð á leðurbuxum með fallegt bleikt sjal
Forsetahjónin ákaflega glæsileg. Takið eftir gullbalderaða búningnum sem Eliza klæðist.
Guðni ber blingið vel – eins og ofursvalur rappari
Kolbrún Halldórsdóttir í glæsilegum stuttum kjól – prjónasjal í fánalitunum er á herðum dömunnar fyrir framan hana.
Auglýsing
Gott hár sem lætur illa í vindi. Vasaúr… alltaf smart. Sólveig Pétursdóttir glæsileg og þjóðleg
Óttar Proppé eins og alltaf
Erlendir gestir skörtuðu einnig þjóðbúningum
Auglýsing
Dragtarklæddir ráðherrar skunduðu inn í Alþingishúsið
Bjart yfir Björt Ólafsdóttur. Steingrímur með blóðrautt hálstau
Grátt og svart – alltaf smart
Margir völdu að klæðast upphlut
Ásta Pírati
Margir klæddust svörtu
Lögreglustjórinn klæddist einkennisbúning. Dagur B. í himinbláum fötum
Vigdís Hauksdóttir í litríkum strandkjól