Rithöfundurinn heimsþekkti, J.K. Rowling tilkynnti í gær eftir útkomu nýjustu bókarinnar í Harry Potter seríunni, Harry Potter and the Cursed Child, muni vera sú síðasta.
Tilkynnti hún þetta við frumsýningu annars leikverks af tveimur um Potter í London í gær. Kvað hún því niður þann orðróm að um að um framhald yrði að ræða en sumir aðdáendur lásu það í leikverkið. Reuters greinir frá þessu.
„Hann fer í stórt ferðalag í þessum tveimur leikverkum og síðan, já, ég held við séum búin,“ sagði Rowling við fréttastofuna. „Þetta er næsta kynslóðin, þú veist. Ég er í skýjunum með viðtökurnar en nei, Harry er búinn núna.“
Harry Potter and the Cursed Child fjallar um stöðuna á Potter, 19 árum eftir að upprunalegu seríurnar hættu. Harry er nú miðaldra og vinnur fyrir galdrasamfélagið ásamt syni sínum Albus sem er að stíga sín fyrstu skref í galdraheiminum.