Vilt þú hollar og góðar smákökur? Þessar má búa til í morgunmatinn, í nestisboxið eða þegar þú færð þessa tilfinningu að búa til eitthvað til að þagga niður í nammipúkanum…
Það eina sem þarf eru tveir bananar og einn bolli af höfrum!
Auglýsing
Blandaðu krömdum banönunum saman – bættu við bolla af höfrum og búðu til litlar smákökur á smjörpappír á bökunarplötu. Settu í ofninn við 180°C í 12-15 mínútur.
Tilbúið!
Ef óskað er má bragðbæta kökurnar með kanil, súkkulaðibitum, púðursykri, sýrópi eða rúsínum!