Kelsey Wells heldur úti bloggi sem heldur betur hefur vakið athygli undanfarna daga. Hún hefur verið að æfa samkvæmt BBG prógrammi Kayla Itsine og má sjá flottan árangur á meðfylgjandi myndum. En ef þú heldur að hún sé eitthvað að spá í hversu þung hún sé er það misskilningur!
Á myndunum má sjá hversu mikið hún vó á mismunandi tímabilum: 66 kíló (145 pund), 55 kíló og svo á myndinni lengst til hægri er hún 63,5 kíló. Á nýjustu myndinni (til hægri) er hún mjög flott – vöðvarnir sjást betur heldur en á myndinni þar sem hún er sem grennst. Biðlar hún til kvenna að hengja sig ekki á vigtina og láta einhverja kílóatölu segja til um hvernig manni á að líða með sjálfa sig.
Lesa má sögu hennar í meðfylgjandi Instagrampósti sem ætti að vera hvatning og hugvekja allra sem eru að berjast við vigtina!