Forsvarsfólk Hinsegin daga á frumkvæði að því að samið hefur verið sérstakt lag fyrir hátíðina Reykjavík Pride 2016 og eru hlutaðeigandi að vonum ánægðir með hvernig til tókst. Meðlimir hljómsveitarinnar September sömdu lag og texta og flytja lagið ásamt Bjartmari Þórðarsyni.
Lagið heitir „Við getum sameinast“. Myndbandið er framleitt af Heiðskírt.