Oh, það eru engin endamörk á því hvað er hægt að láta sér detta í hug mikla vitleysu. Allir vita hversu skrýtið lífið er þegar maður er heima með ung börn á heimilinu og allt lífið stjórnast af því hvernig þau sofa og borða og þá er um að gera að finna upp á einhverju nógu fyndnu og fáránlegu til að stytta sér stundirnar.
Núna er internetið að springa vegna myndbanda sem sýna foreldra framkvæma ótrúlegt Cheerios-hringja atriði. Þetta gengur út á að reyna að raða upp eins mörgum Cheerios-hringjum á sofandi börnum og hægt er – án þess að Cheerios-turninn falli.
Sumir reyna þetta á gæludýrum líka. Hafið þið prófað þetta?
Það hefur Obama bandaríkjaforseti gert og hér eru klippt saman nokkur fyndin myndbrot!