Litli prinsinn af Cambridge varð afar hræddur á flugsýningu í Gloucestershire í Bretlandi þar sem hávaðinn var heldur mikill fyrir einn tveggja ára!
Fjölskyldan heimsótti flugsýnininguna Royal International Air Tattoo sem er stærsti viðburður sinnar tegundar í heimi. Georg tók líka smá bræðiskast þegar mamma hans, Kate, var ekki komin nógu snemma að taka hann upp og láta hann fá heyrnartól. Georg verður þriggja ára í þessum mánuði.
Eftir smástund var hann aftur orðinn hann sjálfur – þægur og forvitinn. Skoðaði litli maðurinn þyrlur og flugvélar með pabba sínum, m.a. Squirrel þyrlu og fékk hann einnig að kíkja í flugstjórnarklefann á Red Arrow Hawk.
Þetta er í fyrsta skipti sem Georg fer með foreldrum sínum á slíkan opinberan viðburð. Bíddu, bara – það verður nóg af þeim í framtíðinni litli prins!
