Hélst þú að pabbi þinn hefði gert þig vandræðalega einhverntíma? Þá hefur þú ekki hitt föður að nafni Chris Martin…því sá pabbi dansar ekki fyrir framan vini þína eða hótar að lemja kærastann þinn. Nei, hann gerir það á Netinu. Við unglingsdóttur sína.
„Jú, ég sá að dóttir mín hafði verið að pósta sexý selfies af sér og í stað þess að banna henni það….tja, ég fann betri leið,“ segir hann á Instagram. Chris er grínisti og blaðamaður frá Washington í Bandaríkjunum og má heldur betur segja að hann hafi slegið í gegn (ekki hjá dóttur sinni sennilega samt…)
Auglýsing
Auglýsing