Hvernig væri að vera svona hæfileikaríkur förðunarfræðingur? Lucia Pittalis (Instagramsíðan) hlýtur að vera á heimsmælikvarða bæði þegar kemur að hæfileikum og hugmyndarflugi. Hér eru nokkur meistaraverk eftir hana en segist hún vera bæði málari og mikill aðdáandi kvikmynda, tónlistar og leikhúss.
„Ég sameinaði ástríðu mína fyrir portrettum og farða með því að búa til þetta skemmtilega verkefni – að breyta sjálfri mér í karaktera og stjörnur sem ég dáist að. Það er svo gaman að gera þetta! Ég kaupi hluti eins og gamlar hárkollur og aukahluti á mörkuðum og horfi á myndir, ljósmyndir og myndbönd til að koma mér í gírinn,“ segir hún.
Hún er alger snillingur – sjáðu: