Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi skellti sér á leik Íslands og Portúgal á EM í Frakklandi og skemmti sér greinilega konunglega eins og myndir hennar bera vott um á facebook síðu hennar.
Halla segir: “ Til hamingju Ísland! Engin orð ná yfir þá samstöðu sem ég sá og fann innan vallar sem utan í St. etienne í dag/kvöld. Ég er þakklát, stolt og hrærð! Það er líka gaman að segja frá því að erlendir fjölmiðlar hrósuðu bæði íslenska liðinu og stuðningsmönnum fyrir einstaklega fallega og skemmtilega framkomu. Við getum svo vel verið til fyrirmyndar!“
Þessum myndum deildi Halla á facebook síðu sinni