Næsti leikur Íslendinga sem er við Ungverja fer fram í Marseille í dag þann 18. júní. Fyrir okkur sem heima sitjum er bara um að gera að horfa á leikinn í sjónvarpinu… þetta verður ógeðslega spennandi…
Gabor Kiraly
En hverjum mætum við á laugardag? Ungverska liðið vann Austurríki með eins marka mun þannig að – eitthvað geta þeir ungversku. (Djók, þeir eru fínir) Markmaðurinn þeirra Gabor Kiraly er þjóðsagnapersóna í Ungverjalandi og víðar og Ungverjarar elska sinn mann.
Gabor Kiraly er kannski frægastur fyrir að vera alltaf klæddur gráum joggingbuxum – reyndar klæddist hann upphaflega svörtum joggingbuxum en einn daginn voru allar svörtu víst skítugar og þá urðu gráar fyrir valinu og hann hefur ekki breytt út af vananum síðan. Það eru engar tískusveiflur hjá Kiraly – hann er eins ár eftir ár.
Hann er elsti leikmaður sem tekur þátt í EM mótinu í ár hann er 40 ára, tveggja mánaða og tveggja vikna.
Upphaflega klæddst hann joggingbuxum vegna þess að hann vildi hlífa sér á hörðum vellinum og þetta hefur þróast yfir í hálfgerða hjátrú – Hann er alltaf klæddur gráum joggingbuxum og þær skulu vera einu númeri of stórar.
Það er fleira sem hann klæðist af hjátrú. Oft er það svört hafnarboltaskyrta númer 13 og bol með tígrisdýramynd og hann er gjarnan í þessu undir liðspeysunni.
Leikmenn ungverska liðsins líta upp til hans þrátt fyrir hans sérkennileg heit enda eru sumir liðsfélaga hans mikið yngri en hann. Sumir voru bara alls ekki fæddir þegar hann var byrjaður að spila fótbolta. Kiraly hefur spila 103 leiki fyrir lið sitt.
Ísland og Ungverjaland léku í fyrsta sinn sama árið 1988 og þá unnu, 3:0.
Hvenær höfum við sigrað Ungverja?
3. júní 1992. 1:2 í Ungverjalandi. Þorvaldur Örlygsson (51), Hörður Magnússon (73)
16. júní 1993. 2:0 á Laugardalsvelli. Eyjólfur Sverrisson (13), Arnór Guðjohnsen (77)
11. júní 1995. 2:1 á Laugardalsvelli. Guðni Bergsson (61), Sigurður Jónsson (68)