Á Instagram og Twitter er myllumerkið #onelove vegna morðanna í Orlando sem framin voru af bandarískum manni sem hafði fordóma gagnvart samkynhneigðum. Hann skaut 50 manns til bana og yfir 50 manns eru særðir en fólkið var að skemmta sér á staðnum Pulse sem er dansstaður sem samkynhneigðir og hinsegin fólk sækir.