Túrmerik te eða fljótandi gullið er vinsæll drykkur um gervalla Asíu. Túrmerik á að vera bólgueyðandi og vinna gegn sýkingum í líkamanum. Sumsé algjör heilsubótardrykkur!
Þessi rjómakenndi og ofurlítið sæti drykkur á örugglega eftir að slá í gegn hjá þér því hann er mjög góður og nærandi.
Auglýsing
Hvað þarf til:
1 bolli kókos mjólk
1 bolli vatn
1 mtsk Ghee (eða venjulegt smjör)
1 mtsk hunang
1 tsk túrmeric duft eða ferskt rifið
Aðferð:
Hitið vatnið og kókosmjólkina í potti og bætið smjöri, hunangi og túrmerik saman við og hitið áfram í 2 -3 mínútur. Hrærið saman þar til allt hefur samlagast og orðið vel heit.
Hellið í glös eða bolla og njótið!