Hljómsveitin FM Belfast þau Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, Árni Rúnar Hlöðversson, Árni Vilhjálmsson and Örvar Þóreyjarson Smárason gerðu allt vitlaust í gær og slóst forsetaframbjóðandinn Andri Snær Magnason í hópinn og lamdi kúabjöllu eins og enginn væri morgundagurinn. Þarna er kominn frambjóðandi fyrir þá sem vilja að náttúran, þjóðin, æskan og STUÐ verði ríkjandi á Bessastöðum.
Viðburðurinn var á Húrra en þar voru vel sóttir stuðningstónleikar til styrktar forsetaframboði Andra.