Allir elska súkkulaðikökur og ískalda mjólk en ekki eru allir svo ástríðufullir súkkulaðikökuelskendur að þeir láti hafa sig í það að varðveita uppskriftina á líkama sínum.
Reddit notandinn Rudecarp hitti gaur með óvanalegt húðflúr — sem kallar sig Mango — í krabbameinshlaupi. Rudecarp tók mynd af húðflúrinu og spurði gaurinn auðvitað út í þetta óvanalega líkamsskraut.
Mango svaraði því til að þegar hann hefði loksins dottið niður á bestu súkkulaðikökuuppskrift allra tíma þá hefði hann ákveðið að hún ætti heima á fætinum á sér svo hann gæti gripið til hennar hvenær sem er og hvar sem er.
Hvaða uppskrift er nógu góð til þess að þú viljir hafa hana blekaða á líkama þínum um ókomna tíð?