Gott og ferskt í sumarhitanum
Þessi eftirréttur er alveg sérlega ferskur og hressandi og auðvelt er að búa hann til.
Svona ferðu að:
Skerið 4 st. vanillustangir í tvennt og skafið út fræin. Setjið stangir og fræ í 3 dl. mjólk og 30 gr. af sykri og hitið að suðu. Fjarlægið stangirnar. Látið mjólkina kólna ofurlítið.
Þeytið saman 3 eggjarauður og ¼ matskeið maísenamjöl. Hrærið vel í þegar þið hellið eggjahrærunni í pottinn með mjólkinni og þegar hræran fer að þykkna þá fjarlægið pottinn af hellunni. Hafið vægan hita á hellunni meðan þið blandið þessu saman.
Þeytið rjóma og blandið 3 matskeiðum varlega saman við vanillusósuna þegar hún hefur kólnað. Setjið í vínglös eða fallega glæra skál.
Setjið sósuna í glösin og skreytið með litríkum niðurskornum ávöxtunum t.d appelsínum, hindberjum, bláberjum og hunangsmelónu.
Kælið í ísskápnum.
Þegar eftirrétturinn er borinn fram er settur smá flórsykur yfir ávextina, ásamt myntu eða sítrónumelissu.