Á meðan flestar okkar ýta á „snooze“ takkann og reyna að kreista út örfáar mínútur af svefni í viðbót er Kim Kardashian löngu vöknuð og þegar búin að pósta þremur selfies á Instagram. Hún sýnir okkur hér fegurðarrútínuna í meðfylgjandi myndbandi sem lætur okkur finnast við vera ótrúlega „óprófessjónal“ að skella á okkur maskara á morgnana og setja hárið í tagl.