Nei, þetta er ekkert grín! Vél sem brýtur saman þvottinn og straujar er mun verða til sölu árið 2018! Hún kostar 700- 850$ sem samsvara rúmlega 70- 100 þúsund krónum íslenskum og hlýtur að vera draumur allra sem reka heimili.
FoldiMate notar belti, arma og bakka sem má stilla sem tekur þvottinn, brýtur hann og sléttar á innan við mínútu. Þú þarft hinsvegar enn að sjá um nærfötin, handklæðin og sokkana. Byrjað er að taka við pöntunum á næsta ári og teljum við óhætt að segja að þetta kunni að vera hin nytsamlegasta uppfinning!