Leikkonan Amber Heard sem er búin að vera gift leikaranum Johnny Depp í átján mánuði sótti um skilnað á mánudaginn var.
Amber hefur nú greint frá heimilisofbeldi sem hún hefur búið við og segja frá því fyrir dómi að Johnny hafi hent í hana farsíma, rifið í hárið á henni og öskrað á hana síðastliðinn laugardag. Dómari hefur úrskurðað nálgunarbann og má Johnny ekki koma nálægt Amber í einhvern tíma.
„Allt okkar samband hefur Johnny beitt mig andlegu og líkamlegu ofbeldi“ segir Amber sem hefur deilt myndum af sér þar sem hún er marin í andlitinu.
Heimild People þar sem segir frekar af málum þeirra hjóna.