Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar brá á leik um borð í varðskipinu Óðni í dag og afrakstrinum deildi hún á Facebook.
Vigdís segir:
– ég pósaði svo svakalega í varðskipinu Óðni í dag með skipstjórahúfuna og fannst myndin nokkuð cool
En núna sé ég ekkert nema Páll Jóhann Pálsson á myndinni
Gott á mig 😉
Þarna á Vigdís greinilega við manninn sem sést í speglinum fyrir aftan hana. Við erum alveg ósammála. Ekkert skyggir á Vigdísi á þessari mynd og já, hún er þokkalega cool og sýnir sannarlega á sér nýja og æsandi hlið.
Vigdísi barst liðsauki því einhver vina hennar bætti um betur og tók veslings ljósmyndarann út af myndinni. Og eftir stendur Vigdís Hauksdóttir heitari en nokkru sinni fyrr.
Það kemur upp í hugann ljósmynd af leikkonunni Charlotte Rampling úr myndinni The Night Porter þó hún sé vissulega djarfari en sú af Vigdísi.