Paris Jackson, dóttir Michael Jacksons heitins, er orðin 18 ára gömul. Einkadóttir hans sýndi nýja blekið á Instagram sem er teikning af augunum hans með skreytingu af dýrum, m.a. Bubbles, simpansanum hans. Hitt húðflúrið til heiðurs pabba sínum er innan á vör hennar.
Býsna flott blek, ekki satt?