Undraverð kona ákvað að breyta algerlega um lífsstíl og hefur nú tekið af sér hálfa þyngd sína! Simone Andersen ákvað að nú væri nóg komið þegar hún var orðin 170 kíló.
Fór hún í hjáveituaðgerð til að minnka magann og hefur hún nú undirgengist aðgerð til að taka lausu húðina af. Niðurstöðurnar má sjá á meðfylgjandi myndum og eru afar hvetjandi. Er Simone sjálf förðunarmeistari og er hluti af Instagramsíðu þar sem fólk deilir reynslu og ráðum.