Meira en 80.000 íbúar Fort McMurray í Kanada hafa neyðst til að flýja heimili sín vegna ógurlegra skógarelda undanfarna daga. Sem betur fer þurftu íbúarnir EKKI að skilja bestu vini sína eftir því West Jet og Canadian North flugfélögin beygðu reglur sínar og leyfðu gæludýrum að ferðast með eigendum sínum. Talsmaður Canadinan North flugfélagsins sa<gði í viðtali við Huffington Post Canada: „Það er auðvitað óvenjulegt að ferðast með gæludýr í farþegarýminu en við þurftum að beygja reglurnar vegna óvenjulegra aðstæðna.“
Mikið eru þetta dásamlegar fréttir! Sjáðu bara myndirnar af þessum æðislegu dýrum 😀