Í kvöld stígur Gréta Salóme á svið í Stokkhólmi í undanúrslitakeppni Eurovision og þó það sé vinnudagur á morgun ætla margir að fá sér í glas af þessu tilefni. Hörðustu drykkjumenn sem eru að skemmta sér í góðra vina hópi þar sem börn eru víðs fjarri geta leikið þennan leik sér til skemmtunar.
Eurovision drykkjuleikurinn – þið ákveðið hvort þetta á að vera snaps eða bara penn léttvíns eða bjórsopi þegar leikmenn VERÐA að fá sér sopa. Þið eruð fullorðið fólk og setjið reglurnar:
Allir VERÐA að fá sér SOPA/SNAPS þegar eftirfarandi gerist:
Þegar Gísli Marteinn segir brandara sem er annað hvort alveg ófyndinn eða tvíræður
Þegar Gísli Marteinn tvítar á Twitter
Flugeldar springa á sviðinu
Þegar söngvara byrja lagið með því að snúa baki í áhorfendur
þegar söngvarar falla á kné í atriði sínu
Þegar söngvarar fela andlit sitt í höndum sér
Þegar einhver birtist á sviðinu í fatnaði sem á bara heima á leikbúningasafni eða í kynlífsbúð
Þegar þú getur sungið þekkt (ekki Eurovision) lag við lag sem flutt er á sviðinu í Stokkhólmi.
Þegar eitthvert land kemur fram í þjóðbúning
Þegar söngvarar syngja á móðurmáli sínu
Þegar land notar vindvél í atriði sínu
Berfættur söngvari birtist
Þegar land gefur nágrannalandi stig
Þegar Ísland fær 12 stig í símakosningu frá einhverri þjóð
Ef Ísland fær 0 stig í símakosningu frá einhverri þjóð
Ef Ísland kemst í úrslitakeppnina
Ef Ísland kemst ekki í úrslitakeppnina
Góða skemmtun