Virkilega ánægjulegt er að sjá hversu margir styðja slagorð Öryrkjabandalagsins í ár: „Fæði, klæði, húsnæði fyrir alla.“ Öryrkjabandalagið eru regnhlífarsamtök ótal annarra samtaka og varla er til sú fjölskylda á landinu sem ekki á ættingja eða fjölskyldumeðlim eða meðlimi sem ekki tengjast einhverju þeirra. Kröfuganga ÖBÍ verður 1. maí frá Hlemmi og hvetjum við að sjálfsögðu sem flesta til að mæta og sýna samstöðu!