Manstu þegar allir rökuðu helming hársins af? Við sjáum nú æ fleiri myndir af stelpum á netinu sem eru að klippa undir/aftan af hárinu. Það er ekki jafn djarft og að raka alla hliðina af og sést ekki þegar þú ert með hárið slegið. Plús – það verður heitt í sumar og í ræktinni er pirrandi að svitna á hausnum og hárið festist aftan á hálsinum! Finndu fleiri myndir á netinu undir #undercut eða #napecut