Langar þig að smakka? Katherine Day er hjúkrunarkona sem sameinar vinnu og áhugamál með því að búa til kökur sem eru harla óvenjulegar og sumir myndu jafnvel segja…ógeðslegar. Segist hún sækja innblástur héðan og þaðan. „Mér finnst gaman að sjá þegar eitthvað lítur út fyrir að vera eitthvað annað en það er það ekki. Ég elska að sjá svipinn á ringluðu fólki. Ég elska að gera þessar kökur og koma fólki á óvart!“
Þrátt fyrir útlitið segir hún að enginn hafi neitað að leggja þær sér til munns. Hvað myndir þú gera?