Poppdívan Britney Spears hefur aldrei verið í betra formi! Hin 34 ára stjarna tók langþráð frí með sonum sínum, Sean Preston og Jayden James í vikunni. Hún hefur misst nokkur kíló með því að stunda jóga og halda sig við skynsamlegt mataræði. Hér má sjá hana, hamingjusama á ströndinni í Hawaii í hlébarðabikini…við erum svo ánægðar með að hún er á réttri braut!