Viljir þú verða heimsþekkt fyrirsæta er gott að hafa a.m.k. þrennt: Vera á skrá hjá þekktri módelskrifstofu, vinna með heimsþekktum ljósmyndurum og jú…það hjálpar að eiga frægt foreldri!
Sistine Stallone landaði samningi við IMG models og þekkir Hollywoodlífið vel eins og ber að skilja. Þrátt fyrir þessa tengingu kemst hún líka áfram á eigin verðleikum. Hún hefur prófað að leika en hefur ekki jafn mikinn áhuga á því eins og fyrirsætustörfunum enda hefur hún verið “tískufíkill” frá unga aldri að eigin sögn. Sistine er nú sautján ára gömul og segist vera heilluð af þeirri listsköpun sem á sér stað í tískuheiminum.
Móðir Sistine, Jennifer Flavin, var ofurfyrirsæta snemma á tíunda áratugnum. “Mamma kenndi mér að mæta tímanlega og gera það sem til þarf til að ná réttri mynd…að mæta aðeins fyrr og vera aðeins lengur, og vinna eins mikið og hægt er á þeim tíma.”
Það verður virkilega gaman að fylgjast með þessari ungu konu í framtíðinni!
Heimild: Vogue.com