Justin Trudeau, sennilega vinsælasti forsætisráðherra í hinum vestræna heimi, sýnir hér styrk sinn en hann heldur sér á höndunum á skrifborði. Justin er mikill aðdáandi jóga og kallast þessi pósa „peacock“ (páfuglinn) eða mayurasana. Hlýtur þetta að krefjast mikillar einbeitningar því forsætisráðherrann er tæpir tveir metrar á hæð!
Justin og kona hans eru ófeimin við að rækta bæði líkama og sál eins og sjá má á þessari skemmtilegu mynd:
Og hér má sjá hann í indverskum dansi!
Væri nú ekki gaman að hafa svo andlega sinnaðan forsætisráðherra?