Karlmenn fara ekki varhluta af því að þurfa að vera fullkomnir eins og konur. Ný nærfataherferð American Eagle á línu sem þeir kalla Aerie var hrundið af stað í gær, miðvikudag. Ætlunin er að senda út jákvæð skilaboð til karlmanna – sama hvernig þú lítur út, ef þér líður vel í eigin skinni ERTU sexý eða kynþokkafullur.
Herferðin einblínir á fjögur karlkyns fyrirsætur sem eru mismunandi í laginu og hefur ekki verið átt við neina mynd af þeim með myndvinnsluforriti. Með þeirri yfirlýsingu hefur fyrirtækið selt 21% meira en á sama tíma í fyrra. En nóg af blaðri, sjáðu myndbandið!