Samtökin Women Not Objects hafa hrundið af stað afar magnaðri herferð til að segja auglýsendum að fólk sé búið að fá nóg af því hvernig konur eru sýndar í auglýsingum, myndböndum og fjölmiðlum. Þetta myndband áttu að sýna dóttur þinni, syni þínum og hreinlega öllum. Þetta verður að fara sem víðast því skilaboðin sem dynja á ungum stúlkum eru virkilega mannskemmandi.
“Thigh Gap” – “Kylie Jenner lip challenge” – þetta er allt sýnt í myndbandinu. Einnig hvernig bransinn notar ofbeldi, nauðganir, ánauð og jafnvel barnaklám til að selja vörurnar sínar.
Sjáðu myndbandið og DEILDU þessum boðskap, sértu sammála honum.