Við þekkjum þetta flestar…ekki satt? Aaaargh!
Þegar þú ert búin að eyða fáránlega löngum tíma í að naglalakka þig og tékkar svo hvort lakkið sé þurrt og þú eyðileggur allt
Þegar þú ferð í sólbað og áttar þig á að þú gleymdir að raka blett á kálfunum….stóóóran blett
Þegar þú ert ert að raka bíkínísvæðið og vonar að það komi ekki bólur en þær koma samt
Þegar háu hælarnir svíkja þig og þú ert næstum búin að brjóta á þér ökklann
Þegar uppáhaldsteygjan slitnar og þú ert ekki með aðra og ert ekki heima!
Þegar þú ert að mála þig en ert ekki búin og pensillinn dettur í vaskinn og blotnar
Þegar þú gleymdir að fara í íþróttabrjóstahaldara og hleypur og heldur um brjóstin um leið
Þegar þú lítur í spegil og sérð þú ert með varalit á tönnunum og enginn sagði þér frá því
Þegar þú ert að raka á þér lappirnar og ert virkilega að passa þig á að skera þig ekki
Þegar uppáhaldsskórnir svíkja þig og þú færð blöðrur
Þegar þú ert að setja á þig eyeliner og rekst óvart í hann og hann fer út um allt
Þegar þú finnur ekki túrtappann sem þú varst viss um að væri í og heldur að þú endir uppi á spítala
…og þegar þú ert á leiðinni út og sérð lykkjufall í sokkabuxunum og veist að hinar sem þú átt eru líka með lykkjufalli