Allt er nú til… Á vefsíðunni www.modelmydiet.com geturðu séð hvernig þú kemur til með að líta út ef þú fitnar eða grennist.
Á vef þessum eru svæði fyrir karlmenn og konur og þú getur með einföldum hætti sett inn hæð og þyngd þína og svo stillt hversu mikið þú vilt grennast eða þyngjast og séð útkomuna.
Þetta er svona dúkkulísu-leikur fyrir fullorðna og í boði eru valkostir um að breyta útliti persónanna svo þú getir persónugert þær.
Góða skemmtun!