Oft er orðið lesblinda eða dyslexia notað sem samheiti yfir námsörðugleika eins og lesblindu, reikniblindu og skrifblindu. Margir foreldrar þekkja þá reynslu að vinna með barninu sínu í heimanámi en uppskera lítinn árangur.
Hefðbundin skólakennsla virðist ekki henta og barnið dregst aftur úr, upplifir mikla erfiðleika í námi, óskýranlegir maga- og höfuðverkir gera vart við sig, og oft ýmiskonar kvíði og vanlíðan. En lesblinda á ekki bara við um börn, margir fullorðnir eru með lesblindu, þó þeir hafi aldrei verið greindir með lesblindu.
Þessir aðilar hafa ekki náð árangri í bóklegu námi, leitað frekar í verklegt nám eða gefist upp og hætt í skóla. Margir þessara einstaklinga komast þó vel af í lífinu og eru oft miklir athafnamenn. Talið er að allt að 10 prósent þjóðarinnar sé með lesblindu en sumir eru aldrei greindir.
Eftirfarandi einkenni eru dæmi um lesblindu:
· hafa sérstaklega mikið ímyndunarafl.
· eru sérstaklega meðvituð um umhverfi sitt.
· eru mjög forvitin/n.
· nýta öll skilningarvitin í einu.
· geta upplifað hugsun sem veruleika.
· sleppa stöfum eða víxla við lestur.
· finnast stafir hreyfast eða hverfa.
· fara línuvillt.
· eiga erfitt með stafsetningu.
· gera ekki mun á stórum og litlum stöfum.
· þekkja ekki hægri og vinstri.
· umhverfið truflar.
· eiga erfitt með að læra á klukku.
· gleyma sér í dagdraumum og fylgjast ekki með.
· eiga erfitt með að skipuleggja sig.
Nánari upplýsingar á http://www.lesblindulist.is