Jæja gott fólk, nú er alveg tilvalið að taka upp nýja siði. Bæði til sparnaðar og eins til að taka þátt í því að verja umhverfi okkar.
Matarsóun er eitthvað sem bítur flesta í hjartastað þegar það þarf að henda blauta ónýta salatinu eða mygluðu jarðarberjunum vegna þess að heimilisfólkið var ekki nógu duglegt að borða þetta í tíma. En það er hægt að finna ótrúlega mikið af ráðum til að koma í veg fyrir þetta.
Hér eru nokkur:
#1 – Settu laukana í nælonsokk og bittu hnút á milli þeirra. Með því að hengja þá þannig upp í eldhúsinu, endast þeir í allt að 8 mánuði þar sem þeir eru í fersku lofti og liggja ekki saman.
#2 – Kartöflur, lauka og epli ætti aldrei að geyma saman. Kartöflur og epli ættu að geymast í sitthvoru lagi í ísskáp þar sem þau rotna mun síður í myrkrinu og svalanum. Munið bara eftir að fylgjast með og taka skemmd í burtu jafnóðum til að þau smiti ekki heilbrigðu eplin, þetta gildir líka um kartöflurnar.
#3 – Þegar fersk ber eru keypt, ætti að setja þau strax í skál með vatni og borðediki (hlutföll 10:1) og sigta þau og leyfa þeim að þorna. Þetta drepur allt líf á þeim og berin endast lengur.
#4 – Hunang sem geymt er í vel lokaðri glerkrukku, endist nærri því að eilífu. Reyndar er þessi dísæti unaður talin ein langlífasta fæða í veröldinni.
#5 – Egg geturðu geymt með því að brjóta þau í ísmolabox með örlitlu salti og fryst þau.
#6 – Tómatsósur og pastasósur geturðu einnig fryst. Helltu þeim í plastpoka með rennilás og settu í frystinn í ca. klukkutíma. Hálffrosin sósan er síðan skilin í sundur í litla skammta með því að þrýsta hníf á massann og búa þannig til nokkra kassa(eggin upp). Setjið aftur í frystinn þar til við næstu notkun.
#7 – Þegar þú tínir kryddjurtirnar þínar, geturðu brytjað þær niður, hellt ólífuolíu yfir þær og sett kryddolíuna þína í ísbox og fryst. Endast bókstaflega að eilífu.
#8 – Með því að vefja matarfilmu utan um stöngulinn á banönunum endast þeir mun lengur og brúnast mun seinna.
#9 – Sellerí, brokkolí og salathausar endast mun lengur stökkir ef þeir eru geymdir í álpappír í ísskápnum.
#10 – Salat endist vel innvafið í eldhúspappír, sem dregur þá í sig allan aukaraka.
#11 – Gulrætur endast nær að eilífu ef þær eru geymdar í myrkri í sandi.
#12 – Kjöthakk er hægt að geyma á sama hátt og tómatsósurnar, hálf-fryst í plastpoka með rennilás og því næst skipt niður í hæfilega matmálsskammta með því að þrýsta hníf (eggin upp) á massann og skapa ferninga.
#13 – Ostur í dollum endist lengur ef dollan er geymd á hvolfi!
#14 – Í stað plastíláta er ráðlegra að nota glerkrukkur með loki þegar geyma á mat. Allur matur endist lengur í gleri enn plasti.
#15 – Brauðosturinn er mikið betri á bragðið, svitnar ekki og endist mun lengur ef hann er geymdur í smjörpappír í stað plastsins.
#16 – Settu rótina á vorlauknum þínum beint í vatn þegar þú kaupir hann og leyfðu honum að halda áfram vexti sínum þar. Þá áttu alltaf ferskan vorlauk og það vex nýr upp úr rótinni ef þú setur hana í mold þegar þú ert búin að nota laukinn alla leið niður.
#17 – Kökur endast og endast ef þú raðar brauðsneiðum á skurðarsárin til að verja þær á milli þess sem tekið er af þeim. Brauðið ver kökuna fyrir loftrakanum, dregur hann í sig og kemur í veg fyrir að kakan þorni og harðni.
#18 – Eins geturðu sett eina brauðsneið ofan í púðursykurspokann til að hann haldist mjúkur.
#19 – Þegar fetaosturinn klárast, geturðu sett restina af olíunni í flösku ásamt mörðum hvítlauksgeira og þá ertu komin með hvítlauksolíu út á pizzuna.
#20 – Þegar þú skerð niður tómat næst, taktu þá frá eina eða tvær sneiðar og leggðu þær ofan á moldina í blómapotti. Eftir fáeinar vikur ertu komin með eigið tómattré.
#21 – Þegar þú kaupir þér ávexti næst, taktu þá strax úr plastpokanum þegar heim er komið. Þeir skemmast síður ef þeir eru ekki geymdir í kæfandi plastinu.