Þessu má hreint út sagt enginn missa af. Yfirvegaðar leggja þær stuttu fullorðnum konum lífsreglurnar, meðan förðunarburstarnir eru mundaðir og spjallið tekur yfir verkefnið. Fullorðnar konur ættu að panta sér steik á veitingahúsi, kyssa karlmanninn ef þeim dettur í hug og algerlega láta vera að senda broskalla-SMS þegar heim er komið.